Persónuvernd
Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 20. október 2026
1. Almennt
Dinta, Reykjavík (hér eftir „við“) er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem berast í gegnum vefsíðuna dinta.is og sýnishornsvefi sem við smíðum fyrir fyrirtæki. Þessi stefna lýsir hvaða upplýsingum við söfnum, hvers vegna og hvernig við förum með þær. Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almenna persónuverndarreglugerð ESB (GDPR).
2. Fyrirspurnir og sýnileikapróf
Þegar þú sendir okkur fyrirspurn eða mælingarbeiðni söfnum við:
- Nafni, netfangi og nafni fyrirtækis
- Vefslóð fyrirtækis, kjósir þú að gefa hana upp
- Skilaboðunum og svörunum sem þú skrifar
- Hvaðan heimsóknin kom (t.d. Google-auglýsing eða leit) og fyrstu síðunni sem þú opnaðir. Þetta er lesið úr slóðinni og ekki geymt í vafranum þínum.
- Auðkenni heimsóknarinnar, svo fyrirspurnin tengist heimsóknaskránni (sjá 3. lið)
Sýnileikaprófið skoðar vefinn sem þú slærð inn. Við vistum ekki niðurstöðuna, en lénið og einkunnin fara sem mæliatburður til Google Analytics og, hafir þú samþykkt vefkökur, til Meta (sjá 4. lið). Í okkar eigin skrá kemur aðeins fram að próf var gert, ekki lénið.
Hýsingaraðili vefsins skráir auk þess hefðbundnar netþjónaskrár (t.d. IP-tölu og tímasetningu beiðna) í öryggis- og rekstrarskyni.
3. Heimsóknaskrá okkar
Við skráum sjálf hvernig dinta.is og sýnishornsvefirnir eru notaðir: hvaða síður eru skoðaðar og hve lengi, hvaðan heimsóknin kom, á hvaða hlekki og hnappa er smellt og hvort eyðublað var opnað eða sent. Land og bæ lesum við úr staðsetningu nettengingarinnar. Við geymum hvorki IP-tölu, upplýsingar um vafrann né neitt sem þú skrifar í reiti.
Hlekkir í tölvupósti frá okkur. Hlekkir á dinta.is og á sýnishornsvefi í pósti sem við sendum bera kóða sem vísar á viðtakanda póstsins. Opnir þú vefinn úr slíkum pósti sjáum við að viðtakandinn, eða einhver sem fékk póstinn áframsendan, skoðaði vefinn og hvað var skoðað. Kóðinn er í þeim hluta slóðarinnar sem vafrinn sendir aldrei áfram, og vefurinn fjarlægir hann um leið og síðan opnast.
Eyðublöð. Sendir þú fyrirspurn tengjum við heimsóknina við fyrirtækið sem hún kom frá.
Endurkoma. Samþykkir þú vefkökur á dinta.is geymum við handahófskennt auðkenni í vafranum þínum, svo við þekkjum næstu heimsókn ef fyrri heimsókn hefur verið tengd fyrirtæki. Hafnir þú, eða svarar ekki, geymum við ekkert í vafranum og hver heimsókn stendur ein. Á sýnishornsvefjunum er aldrei neitt geymt í vafranum.
4. Vefmælingar annarra
- Google Analytics og Google Ads keyra í samþykkisham (Consent Mode). Áður en þú samþykkir senda þau mælingar án vefkaka; eftir samþykki mega þau setja vefkökur.
- Meta Pixel heldur öllum atburðum þar til þú samþykkir. Eftir samþykki, þegar þú sendir eyðublað, sendum við Meta einnig upplýsingar um fyrirspurnina frá netþjóni okkar (Conversions API): dulkóðað netfang og nafn, IP-tölu og vafra, til að mæla árangur auglýsinga.
- Vercel Web Analytics og Speed Insights telja heimsóknir og mæla hraða síðunnar án vefkaka og án þess að geyma neitt í vafranum.
5. Tilgangur og lagagrundvöllur
- Að svara fyrirspurnum og undirbúa þjónustu sem þú óskar eftir (ráðstafanir að beiðni þinni fyrir samningsgerð)
- Heimsóknaskráin og kóðar í hlekkjum: lögmætir hagsmunir okkar af því að vita hvort þau sem við höfum samband við skoða vefinn, og af því að bæta vefinn og þjónustuna
- Allt sem er geymt í vafranum þínum til mælinga, og mælingar Google og Meta með vefkökum: samþykki þitt, sem þú getur dregið til baka
- Að reka og verja vefinn (lögmætir hagsmunir) og uppfylla lagaskyldur
Þú getur hvenær sem er andmælt því að heimsóknir þínar séu skráðar eða tengdar þér með pósti á hallo@dinta.is. Við hættum þá að tengja heimsóknir við þig og eyðum því sem þegar er tengt. Við seljum aldrei persónuupplýsingar.
6. Vinnsluaðilar
Vercel Inc. hýsir vefinn og mælir umferð og hraða, Resend sér um afhendingu tölvupósts úr eyðublöðunum, Neon hýsir gagnagrunninn sem heimsóknaskráin og fyrirspurnirnar eru geymdar í, og Google og Meta taka við mælingum eins og lýst er í 4. lið. Vinnsluaðilar vinna upplýsingar eingöngu samkvæmt okkar fyrirmælum. Séu upplýsingar fluttar út fyrir Evrópska efnahagssvæðið byggir flutningurinn á stöðluðum samningsskilmálum ESB eða sambærilegum heimildum.
7. Varðveisla gagna
- Einstakir atburðir í heimsóknaskránni (síður, smellir): 90 dagar
- Samantekt hverrar heimsóknar: 13 mánuðir
- Heimsóknir sem enginn snerti, t.d. frá sjálfvirkum forritum: 7 dagar
- Kóði í hlekk: 13 mánuðir frá síðasta pósti sem bar hann. Eftir það vísar hann ekki á neinn.
- Tenging auðkennis í vafra við fyrirtæki: 13 mánuðir frá síðustu heimsókn
- Fyrirspurnum sem leiða ekki til viðskipta er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf
8. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- Fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við höfum um þig
- Fá rangar upplýsingar leiðréttar
- Fá persónuupplýsingum eytt
- Andmæla vinnslu eða óska eftir takmörkun hennar
- Leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (personuvernd.is) teljir þú vinnsluna brjóta gegn rétti þínum
9. Vefkökur og geymsla í vafra
Við fyrstu heimsókn á dinta.is spyr borði hvort þú samþykkir vefkökur. Svarið sjálft er geymt í vafranum. Án samþykkis setjum við engar vefkökur og geymum ekkert til mælinga í vafranum. Með samþykki mega Google og Meta setja sínar vefkökur og við geymum auðkennið sem lýst er í 3. lið. Þú getur breytt svarinu með því að hreinsa gögn síðunnar í vafranum; þá birtist borðinn aftur.
10. Samskipti
Spurningar um persónuvernd má senda á hallo@dinta.is.