Hvað er GEO?
GEO (generative engine optimization) snýst um að gervigreind eins og ChatGPT, Gemini og Perplexity finni efnið þitt, treysti því og noti það í svörum. Í stað þess að keppa um sæti í leitarniðurstöðum keppir þú um að vera nefnd í svarinu sjálfu.
Hvað er AIO og hvernig er það frábrugðið SEO?
SEO snýr að sýnileika í hefðbundinni leit eins og Google. AIO (AI optimization) nær yfir heildarmyndina: hvernig gervigreind les vefinn þinn, hvaða heimildir hún treystir, hvernig staðreyndir um fyrirtækið birtast og hvernig þetta er mælt. GEO er hluti af AIO.
Skiptir SEO ennþá máli?
Já. Google segir að síða þurfi að vera skráð og hæf til að birtast með textabroti til að geta komið fyrir í AI Overviews eða AI Mode. Sami grunnur — skrið, skráning, gagnlegt efni og skýrir innri tenglar — styður því bæði hefðbundna leit og AI-svör.
Hvernig mælið þið sýnileika í gervigreind?
Við keyrum um 200 raunverulegar leitarspurningar sem viðskiptavinir þínir nota, á sex tungumálum í gegnum ChatGPT, Gemini, Perplexity og Google og skráum hvar þitt fyrirtæki er nefnt, hverjir keppinautarnir eru og hvaða heimildir svörin byggja á. Niðurstaðan er sýnileikakort sem hægt er að bera saman milli mánaða.
Hvenær sjást áhrif?
Það fer eftir stöðu vefsins, skriðtíðni, samkeppni og umfangi breytinga. Google segir að endurskrið geti tekið frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur, en engin breyting tryggir skráningu, röðun eða nefningu í AI-svari. Við skráum upphafsstöðu og berum sömu mælingar saman yfir tíma.
Þarf ég að kaupa nýtt kerfi eða skipta um vefumsjón?
Nei. Við vinnum í vefnum sem þú átt nú þegar, óháð því hvort hann er í WordPress, Wix, Shopify eða sérsmíðaður. Greiningin krefst engra breytinga af þinni hálfu.
Í hvaða greinum vinnið þið?
Öllum. Gisting, viðburðir, námskeið, veitingar, verslun, iðnaður og önnur þjónusta — vörurnar okkar eru þær sömu og aðferðin líka. Bókunarvélin bókar bæði nætur og sæti, og SEO, GEO og AIO virka fyrir hvaða fyrirtæki sem fólk leitar að. Ferðaþjónustan er sú grein sem við höfum mælt lengst, en spurningarnar eru alltaf valdar út frá þínum rekstri.