KRONOS CRM — viðskiptavinakerfið

Allur dagurinn í einu kerfi.

Engin afritun á milli Excel-skjala, pósthólfa og minnismiða. Hvert símtal, hver póstur og hvert verkefni lendir hjá réttu fyrirtæki, og allt teymið sér það sama.

  • Íslenskt viðmót
  • Í tölvu og síma
  • Tengist Outlook, Gmail, Payday og Telegram
Pósthólf KRONOS með opnum þræði sem tengist fyrirtæki

01 / 06

Pósthólfið inni í kerfinu.

Outlook og Gmail samstillast á tveggja mínútna fresti og hver þráður tengist réttu fyrirtæki. Allt teymið sér hver á hvaða þráð og hverju er ósvarað.

Smáatriðin

Litlu hlutirnir sem spara tímann.

Skipanaspjald (⌘K)
Hoppaðu á milli fyrirtækja og framkvæmdu aðgerðir án þess að snerta músina.
Afturkalla
Eyddirðu einhverju óvart? Einn smellur og það er komið aftur.
Virkni
Hver gerði hvað og hvenær. Hvert símtal og hver breyting er skráð á nafn.
Tilkynningar
Í kerfinu, í símanum og sem morgunsamantekt á Telegram, með kyrrðartíma fyrir hvern og einn.
Póstur verður að verkefni
Einn smellur breytir pósti í verkefni eða færslu á dagatali, með dagsetningu og ábyrgðarmanni.
Í símanum, ljóst eða dökkt
Kerfið fer á heimaskjáinn eins og app, með flipastiku neðst, og skiptir á milli ljóss og dökks útlits.
Útsending
Póstherferðir sendar úr þínu eigin pósthólfi, jafnt og þétt yfir vinnudaginn. Áður en hver póstur fer athugar kerfið hvort einhver sé þegar í sambandi við fyrirtækið.
Skipanaspjald KRONOS opið yfir síðu, með leit

Sérsmíði

Þinn rekstur. Þínir eiginleikar.

KRONOS byrjaði sem okkar eigið kerfi. Þegar reksturinn þinn þarf eitthvað sem enginn tilbúinn hugbúnaður gerir smíðum við það inn í kerfið — eða sem sér kerfi.

  • Smíðað af hugbúnaðarverkfræðingum
  • Byrjar smátt, stækkar eftir þörf
  • Þú átt sérsmíðina
  • Tengingar milli kerfa — bókhaldið, salan og bókanirnar tala saman.
  • Innri kerfi — pantanir, lager og mönnun, utan um verkferlana þína.
  • Sjálfvirkni — skýrslur, listar og póstar sem sendast sjálfir.
  • Eigin flipar og yfirlit — það sem teymið þarf að sjá, þar sem það vinnur.

Verð eftir umfangi

Þú færð töluna áður en við byrjum.

Verðið fer eftir því hvað þarf að setja upp og hvað þarf að smíða. Byrjar smátt og stækkar eftir þörf.

Fyrsta skrefið

Sjáðu KRONOS í notkun.

Við sýnum þér kerfið á 30 mínútna fundi og förum yfir hvað þinn rekstur þyrfti umfram það sem er þegar í því.

Ókeypis kynning

Segðu okkur frá rekstrinum.

30 mín