Netnámskeið
Á þínum hraða
9.900 kr.
á mann, m/vsk
7.984 kr. án vsk
11 lotur á myndbandi · byrjunarpakki
Allt efnið á íslensku, lota fyrir lotu, með byrjunarpakka sem þú afritar beint inn í eigin verkefni.
Skrá mig á biðlistaNámskeið á íslensku
Lærðu að láta agenta vinna raunveruleg verk — uppsetning, húsreglur, minni, tengingar og margir agentar í einu. Kennt af fólki sem rekur fyrirtæki á þessu á hverjum degi.
Efnið
Fyrst grunnatriðin. Svo það sem við gerum á hverju einasta verkefni hjá Dinta — venjur sem virðast sjálfsagðar innan frá en fæstir hafa séð í notkun.
Claude Code á vélina, fyrsta verkefnið og það sem þú þarft að vita um skipanalínuna.
Skýr fyrirmæli, áætlun áður en verkið hefst og yfirferð á því sem agentinn gerði.
Reglur verkefnisins í einni skrá sem agentinn les í upphafi hverrar lotu.
Það sem agentinn lærir í dag fylgir honum á morgun — minnisskrár með ástæðu og notkun.
Verklag sem þú endurtekur verður að skill sem agentinn fylgir skref fyrir skref.
Reglur sem keyra sjálfkrafa við hverja aðgerð, og staðan alltaf fyrir augum.
Agentinn les og skrifar í kerfin sem þú notar — póst, dagatal, gagnagrunna.
Artifacts og Obsidian-skjalasöfn: niðurstöður sem aðrir opna og nota, ekki texti í spjalli.
Undiragentar, worktrees og handoff — nokkur verk í gangi í einu án árekstra.
Lykkjur og agentar á tímaáætlun, með girðingum sem stöðva það sem má ekki fara út.
Heimildir, hvað agentinn má snerta og hvernig greiðslur og gögn viðskiptavina eru varin.
Tvær leiðir
Sama efnið í báðum. Munurinn er hvort kennari er á staðnum, og á hvaða verkefnum er unnið.
Á þínum hraða
9.900 kr.
á mann, m/vsk
7.984 kr. án vsk
11 lotur á myndbandi · byrjunarpakki
Allt efnið á íslensku, lota fyrir lotu, með byrjunarpakka sem þú afritar beint inn í eigin verkefni.
Skrá mig á biðlistaFyrir teymi
20.000 kr.
á mann, án vsk
24.800 kr. m/vsk
2 × hálfur dagur á ykkar vinnustað · allt að 12 manns
Við mætum til ykkar og kennum. Unnið á ykkar eigin verkefnum, með ykkar reglum og kerfum.
Skrá mig á biðlistaAllt að 90% til baka
Starfsmenntasjóðir stéttarfélaga
Félagar í VR og aðildarfélögum Landsmenntar með fullan rétt fá 90% af námskeiðsgjaldinu endurgreitt, allt að 180.000 kr. á ári. Dæmi: netnámskeið kostar 9.900 kr. — með fullum rétti fást 8.910 kr. endurgreiddar og eftir standa 990 kr. Reikningurinn þarf að vera á þínu nafni og þú sækir um hjá þínu félagi eftir námskeiðið.
Vinnustofur fyrir fyrirtæki: hafið samband og við förum yfir málið með ykkur.
Dinta er rekið á Claude Code. Þessi vefur, bókunarvélin okkar og lifandi netverslun sem við höldum úti eru smíðuð og rekin með sömu vinnubrögðum og námskeiðið kennir. Þú sérð kerfið eins og við notum það — sýnt á tilbúnu dæmifyrirtæki, ekki á gögnum viðskiptavina.
Talið 22. september 2026.
Biðlisti
Fyrstu dagsetningar eru ekki komnar. Biðlistinn fær þær fyrst, ásamt endanlegu verði — og það kostar ekkert að vera á honum.
Finnurðu ekki svarið? Sendu línu á hallo@dinta.is.