Ókeypis sýnileikapróf

Sést vefsíðan þín í gervigreind?

Sífellt fleiri spyrja ChatGPT og aðra gervigreind í stað þess að leita á Google. Prófið skoðar á nokkrum sekúndum hvort vefurinn þinn er læsilegur fyrir þessar vélar — og hvað stendur í vegi.

Prófið skoðar vefinn beint — engin gögn eru geymd og engin skráning þarf fyrir fyrstu niðurstöðu.

Hvað prófið skoðar

Sjö atriði á nokkrum sekúndum.

Prófið sækir forsíðuna, robots.txt, vefkortið og llms.txt og ber þau saman við það sem gervigreind og leitarvélar þurfa. Niðurstaðan er einkunn frá 0 til 100 og stutt skýring á hverju atriði.

Prófið spyr ekki gervigreindina sjálfa. Hvort og hvernig fyrirtækið þitt er nefnt í svörum hennar kemur fram í ókeypis mælingunni.

Aðgangur gervigreindar
Hvort robots.txt hleypir GPTBot, ClaudeBot, PerplexityBot og Google-Extended inn, og hvort vefurinn svarar þegar gervigreindarvafri kemur í heimsókn.
Læsilegt efni
Hvort textinn stendur í HTML-kóðanum sjálfum eða birtist aðeins eftir að JavaScript keyrir — margir gervigreindarvafrar keyra það ekki.
Skráning og skipulögð gögn
Hvort forsíðan hefur titil og lýsingu og má fara í leitarniðurstöður, og hvort schema.org-gögn lýsa fyrirtækinu.
Vefkort og llms.txt
Hvort sitemap.xml vísar vélunum á síðurnar og hvort llms.txt er til — stutt yfirlit um vefinn sem gervigreind getur lesið.